05júní
hæhæ er komin með nýtt eitthvða sem heitir myspace...
www.myspace.com/katlak
endilega kíkkið held að það sé nóg fyrir mig að hafa bara 2 síður þessa nýju og barnalandið hehe ;o)
en nýja síðan erí vinnslu á alveg eftir að læra meira á þetta...
11maí
Svoltið skonndið sko.. ;o) ég verð POTTÞ'ETT "Vond" mamma ;o)
Var mamma þín vond? Mín var það! Við áttum
verstu mömmu í heimi. Þegar aðrir krakkar
borðuðu nammi í morgunmat fengum við
hafragrauut. Þegar aðrir krakkar fengu djús og
kex í hádegismat fengum við samlokur og
ávexti. Þú getur rétt ímyndað þér hvað hún gaf
okkur í kvöldmat! Mamma vildi alltaf vita hvar
við vorum ALLTAF, það hefði matt halda að
við værum í fangelsi. Hún vildi vita hverjir voru
vinir okkar og hvað við vorum að gera með
þeim. Þegar það var FRÍ í skólanum þurftum
við að vinna. Við þurftum að vaska upp, búa um
rúmin,læra að elda, taka til, fara út með ruslið
og vinna fullt af öðrum leiðinlegum störfum.
Við vorum viss um að hún lægi vakandi á
nóttunni bara til að hugsa um hvað hún ætti að
láta okkur gera daginn eftir. Hún lét okkur alltaf
segja sannleikann, allann sannleikann og ekkert
nema sannleikann. Þegar við vorum unglingar
gat hún lesið hugsanir okkar. Það var ERFITT
líf! Þegar allir fengu að fara á djammið og
skemmta sér 12 eða 13 ára, fengum við ekki að
gera neitt fyrr en við vorum 16 ára. Út af
mömmu okkar misstum við af svo mörgu sem
aðrir krakkar gerðu. Ekkert okkar hefur verið
tekið fyrir að stela í búð, eyðileggja eigur
annarra eða verið handtekið fyrir glæpi. ALLT
henni að kenna. Við urðum aldrei full byrjuðum
aldrei að reykja, vorum aldrei úti allar nætur,
gerðum aldrei þessa þúsund hluti sem margir
unglingar gera. Núna erum við flutt að heiman
og við gerum okkar besta til að vera vondir
foreldrar eins og mamma okkar var. Ég held að
það sé það sem er að heiminum í dag. Það er
bara ekki til nóg af vondum mömmum lengur.
ég held að þetta sé allt satt... ;o)
03maí
Hæ hæ hvvva haldið þig, gellan skellti sér í gólf síðasta sunnudag hahah sem var bara fyndið því ef ég hitti kúluna fór hún ca 2 metra áfram alveg glymrandi frammistaða ;o) Við Markús vorum líka á sólpallinum hjá Fanney og Friðjoni allan daginn, skelltum okkur í sund í útrunnum björgunarbát sem var reyndar snilld... =) tja þau létan blása upp áður en ég kom þvílíkur skanndall, en þau sögðu að þetta væri alveg eins og í bíómyndunum þannig ég verð bara að trúa því ;o)
Síðan var frí síðasta þriðjudag. við Markús vorum reyndar í sveitinni bara allan tíman=) vorum í fjárhúsunum og skelltum okkur svo upp í traktor að herfa fyrir Bjössa bróður,, er ekki frá því að e´g hafi skemmt móðurlífið á mér þessa 4 tíma sem ég hossaðist um í traktornum og réði ekki neitt við hvert ég skoppaði =)
framundan.... tja pabbahelgi... vinna og kannski skoltið djamm... Krístín vinkona og Kári eru að fara að dimmitera á föstudaginn, þannig ætli maður kíkki ekki eitthvað út þá svona þar að segja ef þau verða ekki dauð fyrir 10 =)
en jæja best að halda áfram að vinna
bleee
25apríl
Jæja ákvað að setja inn smá færslu hérna svona til tilbreytingar =)
en það er nú svosem voða lítið að frétta af okkur... er bara í 66 allan daginn hún Arndís mín er að fara að hætta =/ alveg ömulegt þannig ég veit ekkert hvernig þetta sumar verðu hehe =)
En við Markús skruppum í borgina síðustu helgi það var reyndar fínt... okkur tókst að eyða smá pening... reyndar eiginlega bara í Markús það er nú eitthvað nýtt að ég hafi keypt me´r eitthvða lítið hehehe =) kannski því ég þurfti að borga ALLT sjálf núna hehe ;o)
Við erum nákvæmlega ekkert búin að djamma neitt síðan ég veit ekki hvenær... það mætti halda að maður sé orðin 50 eða eitthvað nenni svo ekki að hella í mig áfengi og djamma =) ummm hvað er að gerast Katla var full endalaust fyrir svona 2 árum ;o) En ´ætli næsta djamm verði ekki á árshátíð Landsbjargar sem er 19 maí það er pabba helgi þannig að ætli maður skelli sér ekki suður á árshátið... =) sem merkir reyndar að ég þarf að fara í búðina fyrst til að kaupa einhvern mergjaðan kjól til að vera í :o)
en hey er í vinnunni ætlaði bara að hafa þetta stutt =)
kv Katla 66gellzzz
28janúar
Jæja það endaði með að ég ákvað mig og skellti mér á blót á Dalvík =) ég kikkaði á fanney og friðjón þegar ég var búin að vinna... þar sem ég var næstum neidd til að fara í kjól út en þar sem mín er frekar þrjósk endaði með að Fanney skellti sér í kjólinn og ég bara í gallabuxum og bol... ;o) á blótinu var reyndar lesin snilldar annáll þar sem minnst var á böbba og gufuskála, kára, kára, kárahnjúka og brekkusel og margt margt fleira bwhahahah ég hélt að ég myndi kafna úr hlátri.. =) Ég fékk verðlaun fyrir nýliðan... geggjuð verðlaun en í því fólst meðal annars að sinna 1 aðila úr björgunarsveitinni extra vel... hehee =) ég hitti fullt af mágum mínum suma hafði ég séð áður en aðra ekki.... Fór í heimsókn til Siggu sætu "tengdó" sem var reyndar snilld við fengum okkur bara sot saman og sonna... ;o) já já já Baddi hann.... var sóttur fyrir 12, Fanney hummm hún dó næstum inn á baði ern það reddaðist endaði í slagsmálum og rennandi blaut... heheh ;o) Júlíana hehe hún braut hurð.. gott mót þar... ;o) Friðjón ætlaði að labba upp á eitthvað fjall hérna held ég hann var allavega alveg klár á forstofugólfinu þegar ég kom heim hehe en aðrir enduðu bara ælandi... ;o) Mér var svo boðið í samloku og svala með litla Bratta kl 830 sem ég náttlega beilaði á þar sem mér þykir voða gott að sofa... það verður bara samloka og svali seinna.. =) ég átti reyndar langt spjall við skafta og fólki var nú farið að finnast þetta of langt spjall og alltaf að segja mér að koma og tala við litla bróðirinn því hann væri nú ekkert voða sáttur með þetta... hehe þvílikt rugl... ;o) en djöfull erum við að drulla upp á bak í þessum handbolta við þyskaland.... =/ =)
en ég er ekki að nenna þessu ætla að renna í bæinn og sækja strákinn og kíkka svo aftur á dalvíkina þar sem ég nenni ekki að vera 1 heima... =)
23janúar
Jæja eftir langa pásu á þessu bloggi
uuuuu hvað á ég að segja jebb ég er loksins flutt í bæinn komin í bakkahlíð 43 á neðri hæðina með honum kela bróður =) er bara að vinna í 66 norður og jebb með strákinn þess á milli
jebb en annars fór ég í jeppaferð um daginn... upp í laugafell með dalvíkingum og súlum.... sem var reyndar snilld.. =) ooooooo hvað á ég að gera á ég að fara á þorrablót heima í sveit??? eða heima á dalvík??? ohh það er svo erfitt að ákveða þetta marh... =) en hey þar sem ég er búin að skrifa pínu ætla ég að leggjastu upp í sófa ná mér í ávaxtastöng kannski 2 og bara vera þar sem eftir er af kvöldinu... =) =)
06nóvember
Hæ Hæ úff hvað mér leiðist að blogga.... veit aldrei hvað ég á að segja.... en halló halló hvernig er þetta á ekkert að koma snjór á þessa blessuðu eyju????? Mig er farið að DAUÐ LANGA í jeppaferð.... Langar havy mikið að skreppa upp í laugafell henda lærinu á grillið, sötra nokkra bjóra með því... og fara svo í laugina ligga þar í lengri tíma fylgjast með stjörnuhröpunum.... gæti átt heima þarna það er svo geggjað að vera þarna... mmmm ohh ég ætla að hætta að tala um þetta langar óhemju núna..... það væri svo geggjað.....

ætli allir séu ekki sammála mér sem hafa einhverntíma farið þangað.... En það er alveg á hreinu þegar það verður komin nægur snjór verður brunað upp ur eyjafirðinum eða upp úr skagafirðinum og beint upp á hálendið og verið þar föstud, laugad, sunnud..... hey allir við fyrista tækifæri... oki... ég ræð...

ok nú er ég hætt að tala um þetta... Langar miklu meira nuna en áðan....
Það er nákvæmlega ekki neitt búið að gerast hjá mér síðan síðast.... Skrímslið mitt er búið að vera með kvef og hósta í 2 vikur þannig ég er meira og minna búin að vera inni hver trúir því??? auðvitað er ég búin að stelast út.... =) en já helgin var tekin í rólegheitunum hef aldrei gert ekkert heila helgi... bara verið í leti það var geggjað... Það var pabba helgi og ég var bara heima allavega á föstudaginn... Skrapp aðeins út á laugardag eða í heimsókn því ég nennti ekki á djammið .....

en ég ætla að hætta þessu fara að taka úr þvottavélinni og sona reyna að vera smá dugleg svona til tilbreytingar... =)
P.s.... Hemmi við verðum að fara að hittast taka gott fylleri saman og sona.... Maður sér ykkur krakkana aldrei lengur... =(
23október
já ég veit kannksi komin tími á blogg.... en já ég skrapp til reykjavíkur um helgina eða réttarasagt borg óttans eins og hún er kölluð að hitta hana ölfu mína =) það var pabba helgi svo mín var bara að fara í búðir og að versla...ekki slæmt =) ég kom suður á föstudagskvöldið beint í sófann hjá ölfu vinkonu réttara sagt þegar við vorum búin að finna húsið hennar sme gekk nú ekkert rosa vel. en já ´var valla sest þegar ég opnði bjórinn og við tókum gott stelpuspjall áður en hlaldið var niður í bæ... já við byrjuðumá að fara eitthvað veit ekki alveg hvert en gaman af því þar sem ég sat í rólegheitunum sötraði bjórinn minn og hlustaði0 á góða tónlist var ég blikkuð og boðið á barinn hvenær neita ég áfengi??? í þetta skipti hefði ég átt að gera það.... þessi blessaði útlendingur bauð mér upp á einhvern ógeðisdrykk því bjór var ekki nógu fínt.. og hann ætlaði að fljúga til íslands 1 sinni í viku til að hitta mig... uuuu neiii takk... sem betur fer kom alfa vinkona og bjargaði mér náttlega þegar við vorum búin að láta greiið manninn bjóða henni í glas líka en þar sem við máttum ekki fá bjór fór drykkurinn bara í jörðina... sóun á ógeðisvíni.. en föstudagurinn var samt besta kvöld ever... tölum samt ekkert um það því það entist nú ekkert í voða marga daga ;o)
laugardagurinn fór í að eyða peningum í kringlunni verð eiginlega að markús verður að hætta með bleyju því núna held ég að e´g hafi valla efni á þeim á næstunnni..... laugardagurinn átti aða enda á geggjuðu fyllerii en í staðinn endaði ég inn í ´rumi um 11 og sást ekki meir það kvöldið... gaman af því.
.. áfengið kom bara með mér heim aftur... og verður bara að drekkast við gott tækifæri... =)
hahahah en já á föstudaginn þegar við vorum að labba heim til ölfu aftur... sem btw tekur bara 15 mín frá bænum... endaði í allavega klukkutíma labbi því við vissum ekkert hvert við vorum að fara.... við stoppuðum spurðum til vegar en allt kom fyrir ekki við vorum ekki alveg að rata þetta hehe =) rákumst á moggan og ákváðum að kippa honum með bara svona ef við myndum aldrei komast heim þá hefðum við allavega eitthvað til að lesa meðan..... krakkar við erum alveg að koma ég veit alveg hvar við erum.... uuu eftir svona 40 mín nú erum við alveg að verða komin.. alfa þú veist ekkert hvar við erum... jú hva er þetta og eftir svona aðrar 40 mín komumst við lokstins heim... og þetta labb átti að taka 15 mín... =)
en ég ætla að hætta þessu og fara að framkalla myndirnar minar síðan um helgina.... ;o)
08október
Hafiði spáð í því að alkaholistar eru með sömu einkenni og fólk með alsæmer,eða jafn vel verri maður þarf að endurtaka sömu hlutina aftur og aftur og aftur á stutta tímanum, skapbreytingarnar eru svipaðar og vá maður vill helst ekkert þurfa að vera nálagt þeim í langan tíma í einu. Oki kannski ætti ég ekki að vera líkja ölkum við fólk með alsæmer því alkar eru ruglaðir en fólk sem fær alsæmer finnst mér virkilega sorglegt, spáðu í að standa fyrir framan kaffikönnuna og vita ekki hva þú átt að gera =( en þetta er bæði sjúkdómar... æ var eitthvað að spá í þessu í gær, lenti nefla í því að svara sömu spurningunni aftur og aftur og aftur og aftur og á endanum tókst aðilanum náttlega að pirra mig hevy mikið (frekar stutttur kveikiþráðurinn þessa dagana) En spáið í hvað alkar lifa í miklum rugl heimi, mjög margir, þeir detta í það og gefa svo ástæðuna að það séu allir svo vondir við sig, og allt eitthvað á þessu nótunum þvílikt rugl.... en æji ætli það sé ekki sagt að þetta sé sjúkdómur sem fólk þarf aðstoð við að komast í gegnum....
Hahaha og ég komst að staðreind... strákar eru veikgeðja... Þeir eiga að vera sterkari aðilinn þið vitið.... en ég held að við stelpurnar séum að berjast við að leifa þeim að vera það, svo við skemmum ekki þetta stóra stolt sem strákarnir hafa... þúst við stelpurnar þolum miklu meiri sársuka held af öllum gerðum, t.d ég myndi aldrei vilja sá strák reyna að eignast barn, hann myndi ekki meika þetta eftir 2 mín og biðja um svæfingu takk... við erum yfirleitt skynsamari, oki strákar hafa yfirleitt meira vit á peningum og hafa mann í bandi þegar að þeim málum kemur það er allavega þannig þegar mín kemst í búðir í Reykjavíkinni hehehe =) en þegar kemur að tilfinningum þorum við meira, við gefumst ekki upp, við bökkum ekki, skoðum góðu og slæmu hliðarnar og aftast vinnur góða hliðin..... strákar einfaldlega gefast upp of snemma, verða hræddir og sjá ekki fram á þetta...... þvílkik steipa sem ég er búnað gera marh.. hehe =)
En já ég var að klára að setja saman rúmið hans Markúsar, hann náttlega þurfti að fá stórt rúm eins og mamma sín og núna kemst ekkert fyrir í herberginu nema 2 rúm og risa fataskápur... sem er náttlega i lagi því ég fer ekkert mikið fram úr rúminu þessa dagana það er voða gott að vera þar bara og sofa og horfa á dvd... ;o)
En já spjallaði við Ölfuna mína um daginn held það sé planað að fara suður 21 okt til hennar detta rækilega í það um kvöldið skoða strákana í borginni og svo auddað bara heim að kúra hjá henn Ölfu minni,,,, sem endar reyndar örugglega að ég sef í sófanum því gellan er með einvhern karl hjá sér hehe ;o) það er reyndar einhver björgun ráðstefna hjá landsbjörgu veit ekki alveg hvað maður gerir með það, langar á nokkra fyrirlestra þar en ætli maður gefi ekki bara skít í þetta og skoða búðirnar með ölfu... þar sem þetta sona nokkuð planaða er ekki planað lengur held ég að rauðvínið ég og Alfa ættum að geta átt nokkuð gott kvöld saman....
En þetta er kjafffftæææði.... er farinn.... steikin er komin á borðið... =)
02október
Góðan og blessaðan daginn.....
hata mánudaga.... ligg ennþá upp í rúmi =) en helgin var geggjuð renndum á snæfellsnesið á gufuskála á umsjónarmannafund það var reyndar geggjað gaman.... minnir reyndar að við höfum ekkert ætlað að ræða það sem fram fór þarna mikið utan hópsins... ;o) þannig ég veit ekki alveg hvað ég á að segja nema það var geggjað =)
það var geggjaður fyrirlestur þarna um kynferðisofbeldi á börnum, það kom kona frá blátt áfram og sagði frá sinni reynslu síðan hún var lítil og maður fékk bara illt í magan við tilhugsunina að það séu fullt af börnum sem lenda í þessu.... =( og svo kom fólk frá löggunni og vara að tala um dóp og eitthvað ég eiginlega missti af þeim fyrirlestri því Markús var eitthvað órólegur, við fengum að finna lyktina af dópi og eitthvað.. en eins og ég segi þá missti ég eiginlega af honum......
en ég ætla að hætta þessu marh...
hér er samt ein vísa sem var samin á leiðinni á gufuskála,,, held það sé voða lítið til í þessum orðum, krakkarnir missa sig alltaf í eitthvað svona vísna dæmi.... en þetta er bara fyndið.... =)
Júliönu Böbba langar á
inná bað hún brennir
uppá vasknum hamast þá
þegar Böbbi í hana rennir.....
en ég er farin..... bleeee